Auglýsing

Könnun

Ég ég ađ halda útskriftarveislu???

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur

Leit

Leikur dagsins

Hulda í menningarlegri útrás

25. október 2007 klukkan 23:22
Já, það er nú óhætt að segja það :) ég var að koma af Jónasarkvöldi sem var haldið í bíósal Duus-húsa. Í tilefni þess að Jónas Hallgrímsson hefði orðið 200 ára á þessu ári. Heir heir!!

Gunnar Eyjólfsson flutti nokkur ljóð eftir Jónas, Kvennakór suðurnesja söng nokkur lög og Dagný Jónsdóttir (söngkennarinn minn og sópran) söng nokkur lög.Ragnhildur mín á bókasafninu var kynnir kvöldsins og stóð hún sig afbragðs vel og var bókasafninu til sóma. Einnig flutti Páll pistil um Jónas og hans yrkisefni og hversu mikla þýðingu það hefur fyrir nútímasamfélagið. Það er vert frá því að segja að ég held ég hafi verið lang yngsti gesturinn, fyrir utan 2 börn sem fylgdu ömmu sinni :)

Það var prýðisvel staðið að þessu kvöldi og flytjendur kvöldsins voru frábærir, stóðu sig vel. Þetta var æðislega menningarsprauta sem ég verð að fara nota meira alveg þangað til ég verð háð henni :)

En ég er nú á góðri leið með það, ´byrjuð að vinna á bókasafninu og fer í leikhús á laugardaginn á leikritið Dagur vonar... vá hvað mig hlakkar til, það er fátt betra í heiminum en að fara í leikhús :)


Jónas Hallgrímsson
Afmælisbarnið

En jæja, núna verð ég að halda áfram að læra.

Við höfum það bara rosalega gott hérna á vellinum og Einari gengur vel í skólanum. (ég segi ekkert um mig), ég stefni allavegana á að útskrifast núna um jólin. Það er ótrúlegt hvað þetta vex mér allt í augum, ég þarf að fara komast í smá pásu frá skólabókunum.

Þóra mín :) það styttist í heimsóknina. Ég er semsagt að fara til USA að hitta Þóru. Ég fer í nóvember og get varla beðið.

En gott fólk, ég ætla að enda þetta á ljóði eftir afmælisbarnið hinn eina og sanna Jónas Hallgrímsson. (hahaha ein ógisslega heilaþvegin)

Hulduljóð

Skáld er ég ei, en huldukonan kallar
og kveða biður hyggjuþungan beim.
Mun ég því sitja, meðan degi hallar
og mæddur smali fénu kemur heim,
þar sem að háan hamar fossinn skekur
og hulduþjóð til næturiðju vekur.

Þrumi eg á bergi, þýtur yfir hjalla
þokan að hylja mig og kaldan foss.
Nú skal úr hlíðum hárra Tinnufjalla,
svo huldumeyjar þægan vinni koss,
óbrotinn söngur yfir dalinn líða
eins og úr holti spóaröddin þýða.

Þú, sem að byggir hamrabýlin háu,
hjartanu mínu alla daga kær,
sólfagra mey, djúpt undir bergi bláu,
bústu að sitja vini þínum nær.
Döggsvalur úði laugar lokkinn bleika,
ljós er af himni, næturmyndir reika.

Hvers er að dyljast? Harma sinna þungu.
Hlægja þeir öld, er ræður þeim ei bót.
Hvers er að minnast? Hins, er hverri tungu,
huganum í svo festa megi rót,
ætlanda væri eftir þeim að ræða,
sem orka mætti veikan lýð að fræða.
Hulda María Einarsdóttir
2 athugasemdir

Trúiđi ţví ađ kellan sé búin ađ blogga??? ha.. trúiđi ţví???? prufđi ađ klípa ykkur :) Ţví ţetta er dagsatt :)

28. febrúar 2007 klukkan 09:44
Í beinu framhaldi af síðustu færslu....

Jæja gott fólk... ég hef nú ekki beint setið á rassinum síðustu mánuði. Eftir síðustu færslu fékk ég svo mikið pepp og púss frá ykkur elskurnar mínar. Ég gat bara ekki annað en sóst eftir stóra drauminum. Núna er ég byrjuð í söngnámi og er með LK að setja upp Keflavíkur revíu. Það er einmitt frumsýning á föstudaginn!!!!! Kominn smá fiðringur í magann.

Þannig að það er óhætt að segja að ég sé að drukkna í sjálfri mér.... Ég er að gera nákvæmlega það sem mér finnst skemmtilegt og svona væri ég til í að lifa í framtíðinni, bara á launum samt sko!!! En þetta er nú ekki bara dans á rósum... því þessu öllu fylgja fórnir. Ég þarf svoldið að setja fjölskylduna á hakan í nokkra mánuði, ég og snúllan hittumst ekki eins oft og við gerðum áður. Og Einar er svoldið farin að sakna kellu sinnar. En ef ég ætti ekki svona æðislegan kærasta, þá væri ég löngu búin að beila á þessu öllu saman. Ég elska þig ástin mín :) Ég reyni svona að horfa á þetta sem góðan tíma fyrir þau til að vera saman. Feðginatími ;) Því vonandi mun þessi vinna mín skila árangri í framtíðinni. Það má nú samt ekki alveg misskilja mig, ég sé þau nú alveg og þau fá bæði að finna fyrir Hulduknúsi.
 

Vá hvað ég er farin að bulla....

Ég hef voðalega lítið annað að segja sko.... ég nottla bara lifi og hrærist í leiklistinni þessa dagana og gvuð hvað stressið er að magnast með hverri mínútunni. Ég er svo hrædd um að koksa á frumsýningunni þegar ég sé öll þessi augu stara á mig, með eftirvæntingarglampa sem nýstir djúpt inní mínar hjartarætur. hahahaha... FOKUS Hulda - FOKUS!!!!!

Vá ég var nú næstum því búin að gleima einu... Núna sit ég hérna inní stofu á meðan tveir stæltir stóðhestar hanga á glugganum hjá mér ólmir í að komast inn, og ég er að segja ykkur það, þeir eru þvílíkt að hamra í gluggana. Og núna eru þeir búnir að taka gluggann. Allt gert til þess að komast til prinsessunnar, ég meina það. Ég ætti kannski að flétta hárið og kasta því niður til þeirra. Hahahahaha

En já, það eru semsagt rosalegar framkvæmdir í bokkinni og maður getur varla hugsað hérna. Það er verið að skipta um glugga og lagnir fyrir neisluvatnið. Ég vona að þetta verði fljótt að líða, því það er ekki auðvelt að einbeita sér í þessum óbærilega hávaða.


ég ætla að segja þetta gott í bili, ég verð víst að kíkja í einhverjar skólabækur!! ég á að skila ritgerð um miðjan mars og ég er ekki einu sinni búin að ákveða um hvað hún á að vera :( hjálp!!!

ADIOS AMIGOS und ich habe keine Kugleschreibe. HAfið samband við þá sem framleiða þessa bláu venjulegu :) kannski þeir reddi mér.

Verið góð hvert við annað og sýnið smá lit í hinni svarthvítu tilveru. Lífið er of stutt til að eyða því í myrkri!!!!

Hulda María Einarsdóttir
9 athugasemdir

Hin ólćknandi Baktería!!!

04. nóvember 2006 klukkan 05:24

Varúð ---- hér á eftir koma vangaveltur sem ert beint frá mínu hjarta!!! ég ætla bara að láta þær flakka og þið hættið þá bara að lesa ef ég verð booooring.

Hérna í gamladaga, áður en ég gerðist fjölskyldukona og húsmóðir *hóst,hóst*  þá var mitt aðaláhugamál LEIKLIST. Ég átti mér stóran draum um að komast í leiklistarskólann og sá draumur hefur nú alveg blundað í mér síðan. En með tilkomu fjölskyldulífsins og breytra aðstæðna þá fór ég nú að bæla svoldið þessa löngun niður. Ég hugsaði að þetta væri nú kannski ekki rétta leiðin að velgengni, leiðinlegur vinnutími og í sumum tilfellum er mjög erfitt að samhæfa fjölskyldu og leiklistina. En það virðist alveg sama hvað ég reyni þá verður þessi löngun alltaf til staðar. Ég er eins og lítið barn sem dreymir um að verða prinsessa og búa í stórri höll með draumaprinsinum og að við ásamt ljóninu okkar munum búa þar hamingjusöm til æviloka. Litla barnið sér ekki sólina fyrir draumórunum sínum. Það er einhvernvegin svona sem ég hugsa um mig sem leikara. Ótrúlega fjarlægt!! En samt langar mig svo mikið.

Ég var að koma heim af leikritinu Öskubuska sem að er verið að sýna hérna í Keflavík. Jói bróðir minn er í crewinu. Heppinn hann :) :)  Þetta var frábær sýning í alla staði og mæli ég eindreigið með henni fyrir alla. Snilldar krakkar þar á ferð og pottþétt margir tilvonandi leikarar, dansarar eða söngvarar í þeirra hópi.

Það var á þessari sýningu sem þessar vangaveltur fóru allar af stað, ég fór að hugsa hvað hefði orðið um sjálfa mig. Hérna áður fyrr hefði ég pottþétt verið að dandalast í kringum þessa sýningu. Mér fannst ég í kvöld finna smá hluta af sjálfri mér sem ég hélt væri horfinn. Ég fann litlu stelpuna sem átti sér draum að verða leikona og trúði á hann. Ég get svarið það, ég iða öll að innan núna, þegar ég var að keyra heim þá tók ég flippkast og lék sko á alls oddi í bílnum, þið hefðuð bara átt að sjá það. híhíhí Ákkurat á þessari mínútu langar mig að hoppa upp á svið og leika monolog í allavegana 2 klst. Er þetta eðlilegt eða hvað??? Eitt er allavegana víst, Ég er smituð af hinni ólæknanlegu leiklistarbakteríu. Einkennin koma víst bara í skorpum og stundum getur maður afneitað þeim í einhvern x tíma en samt eru þau alltaf til staðar.

En núna eru lika hundrað hugsanir og spurningar að veltast um í hausnum á mér!!! Hvað á ég að gera þegar ég verð stór? Getur maður verið með þráhyggju á einhverju sem maður hefur enga hæfileika í? Er ég nógu góð til að eiga möguleika? so on, so on, so on. Helvítis niðurrífsstarfsemin komin á fullt!!!

Æji ég finn fyrir svo mikilli sælutilfinningu í hjartanu en að sama skapi þá er ég mjög lost. Mjög ánægð að finna týnda hlutan í sjálfri mér en veit samt ekki alveg hvað ég á að gera við hann eða hvernig ég á að höndla hann. Skiljiði??

Shit, ég er farin að tala of mikið um einhvað sem skiptir ykkur kannski engu máli. Best að stoppa núna. Ég ætla að fara leggjast til hvíli og kannski leika eins og einn stuttan leikþátt í hausnum á mér áður en ég fer að sofa. Hahaha (ég er sko ekki geðveik)!!

Kveð í bili og bið að heilsa :)

Kveðja, ein draumóramamma sem er að springa úr athyglissýki :)

Hulda María Einarsdóttir
15 athugasemdir

Sjálfstćtt fólk...

23. október 2006 klukkan 14:46
Jú Marta það er sko kominn tími á eina færslu eða svo :)

Ég er alveg spólandi vitlaus núna.... við hjúin færðum okkur til Ogvodafone um daginn eftir rosalega söluræðu frá einhverjum miður heppnuðum starfsmanni mömmu. Hann lofaði okkur öllu fögru og sagði sko að símareikningurinn myndi lækka heilan helling hjá okkur og svo væri frítt að hringja í heimasíma og svona. Við fátæka fólkið hoppuðum nú á þetta glæsitilboð og sáum fyrir okkur nokkra krónu sparnað sem gæti kannski boðið okkur í bíó einu sinni í mánuði :) Jújú, símareikningurinn frá ogvodafone er alveg lærri en þessi sem við vorum með hjá símanum, EN það var enginn að segja okkur það að við myndum halda áfram að greiða til símans. Þeir eiga línuna og þurfa að fá sitt fyrir það, svo borgum við þeim ef við hringjum í 1818 og einnig ef við hringjum í þjónustuver ogvodafones úr heimasímanum. Finnst ykkur það ekki frekar brjálað, að borga samkeppnisaðilanum fyrir að hringja í sinn þjónustuaðila, ég var svo gáttuð að heyra þetta. En jæja, ég hringdi í bæði fyrirtækin og sagði mína skoðun á þessu öllu saman. Eins og alltaf þá fékk ömurleg svör og þjónustu hjá símakellingagreyunum, (örugglega verið á bullandi blæðingum eða komnar 8 og hálfan mánuð á leið), tóku þessu eins og persónulegu áreiti á sjálfa sig, ég meina þegar það er komið svona fram við eina sem er að tapa sér í reiði þá eru þær sko bara að hella olíu á eldinn. Mér finnst það eigi að taka þetta blessaða starfsfólk og hengja það uppá vegg í smá tíma og senda það svo allt á þjónustunámskeið. En það er nú ekki sömu sögu að segja um þjónustuna hjá vodafone, strákurinn var svo almennilegur að ég var nánast farin að gráta yfir því að hafa vogað mér að garga svona á hann :) En eftir útrásina sem ég fékk í morgun þá ákvað ég að taka þessu nú með æðruleysi og sætta mig við það sem ég get ekki breitt og renn nú yfir reikninginn frá símanum og kíkji á hvort það sé einhvað þarna sem ég gæti notað kjarkinn í og breitt. Og þá ákvað ég nú að hringja í símann og afpanta reikningseðilinn heimm, ég hvort eð er fæ þetta allt í gegnum heimabankann og þarf ekkert á þessum snepli að halda. Hann kostar líka 230 kr sem gera um 2500 á ári. En neinei, þessar vanhæfu elskur hjá símanum svara mér enn og aftur með tómum skæting og láta hreynlega eins og þær séu fimm ára. Ég þarf að vera með reikninginn í greiðsluþjónustu eða borga með vísa korti!!!!! Þetta fyrirtæki getur semsagt skikkað mig til að borga sér 2500 ári án þess ég vilji það, og ég er ekki einu sinni í þjónustu hjá þeim!!! Ég er svo hlessa, þið bara trúið því ekki! Ég hringdi í bankann minn og konan sem ég talaði við varð frekar hissa á þessum skilmálum símans og var mjög sammála mér!! Ég meina er þetta þjóðfélag á hraðri leið til glötunar eða er það bara ég???

Ykkur finnst þetta kannski ekkert merkilegt en það finnst mér, ég var að klára að lesa Sjálfstætt fólk eftir Halldór minn Laxness og ég er nú ekki frá því að hann Bjartur í Sumarhúsum hafi nú smitað mig smá að þessu stolti sínu og vilja til að standa alltaf á sínu. Láta engann vaða yfir sig. Þetta er snilldar bók og mun hún lifa með mér allt til dauðadags. Þið sem ekki hafið lesið hana þá er þetta um hann Bjart sem er fátækur einyrki sem reynir að lifa sjálfstætt, stendur alltaf í skilum og vill helst ekki að fólk sé að skipta sér að hans málum. Hann býr bara í koti sínu með nokkar kindur og fer þær leiðir sem honum henntar.  En samt geta þessir stóru karlar ekki látið hann í friði, eru endalaust að gauka að honum einhverjum gylli tilboðum og lofa öllu fögru í þeirri trú að Bjartur muni nú kjósa þá á Þing í næstu kosningum. Kaupmaðurinn er alltaf að rétta Bjarti einhvað  á kostakjörum og Bjartur heldur tryggð við þann mann í staðinn og safnar inn hjá honum innlegg en svo þegar kaupmaðurinn fer á hausinn greyið þá allt í einu man hann ekkert eftir Bjarti og hans innlegg eru horfin. Bjartur fer svo og byggir sér hús á góðæristímum vegna endalausra tálsýna frá þeim æðri, ég meina þeir létu sjálfstæðan manninn halda það að hann væri að gera þetta einn, en það var of mikið fyrir Bjart greyið og húsið er selt á uppboði og hann byrjar upp á nýtt alls laus fyrir utan nokkrar kindur!!! Er þetta ekki það sem er í gangi í þjóðfélaginu í dag!! Mun þetta ekki alltaf verða svona? Þeir ríku verða ríkari og þeir fátæku verða fátækari?

Þetta var svona mín pæling þennan morguninn, annars er allt gott að frétt og mín er að sitja sig í gírinn fyrir tvær ritgerðir :) Leikhús á laugardaginn, Skoppa og Skrítla í þjóðleikhúsinu. Rosa stemming örugglega, hlakka til að sjá hvernig Thelma verður.

en jæja, þið eruð örugglega löngu hætt að lesa, því þetta röfl mitt er kannski ekki upp á marga fiska, en samt það sem lá mér mjög þungt á hjarta og ég varð að koma út!!

Núna ætla ég að hringja í neytendasamtökin og athuga með þetta allt saman! mín komin með áráttu held ég bara :)

Lifið í lukku en ekki krukku og í guðanna bænum ekki sækja um vinnu hjá þjónustuveri símans!!! Það fá allir kústskaft í rassinn með fyrsta launaseðlinum.

Síjú
Hulda María Einarsdóttir
9 athugasemdir

Testing 1-2-3 Testing!

11. október 2006 klukkan 01:44

Howdie folks

Jæja, þá er ég búin að opna leið fyrir alheiminn til að fylgjast með mínum hugsunum :) Vá!! það hljóta margir að liggja í gólfinu yfir spenningi, ég meina búnir að bíða í mörg ár eftir þessum atburði :) hahahaha


Þetta blogg er fyrst og fremst fyrir mig til að fá útrás. Þannig að ég ætla mér nú bara að skrifa þegar andinn kemur yfir mig. Ég er ekki alveg að nenna að vera endalaust einhvað að babla um hvað ég fékk mér í morgunmat og þess háttar. Mér finnst þið meira virði en það :)

En jæja, núna kallar sagan á mig... ég get svarið það, bókin er bókstaflega að garga á mig!


Best að svara þessari elsku og sinna henni, þó það væri ekki nema smá


Lovs Hulda

Hulda María Einarsdóttir
8 athugasemdir